Skemmtiferðaskip í höfn á Akranesi. Ljósm. úr safni/hs

Nýr leiðarvísir fyrir gesti skemmtiferðaskipa á Akranesi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Staðbundnir leiðarvísar veita gestum skemmtiferðaskipa gjarnan hjálpleg tilmæli áður en komið er í höfn á hverjum stað. Þeir innihalda ábendingar um hvert sé best að fara og ráð um hvernig eigi að vera tillitssamur gestur. Meðal annars hvetur leiðarvísirinn gesti til að njóta bæjarins og landslagsins, en láta gróður, dýr og menningararf ósnortið. Leiðarvísirinn bendir einnig á markverða staði og gönguleiðir og bendir gestum á að um að biðja um leyfi áður en þeir taka myndir af bæjarbúum, til þess að forðast að rjúfa friðhelgi þeirra.\r\n\r\nÁ undanförnum vikum og mánuðum hefur Áfanga- og markaðssvið SSV, ásamt Akraneskaupstað og Faxaflóahöfnum, tekið þátt í samstarfsverkefni um gæði í móttöku á skemmtiferðaskipum á Akranesi. Þetta er NORA verkefni sem kom í gegn um Ferðamálastofu og er samstarfsverkefni við The Association of Arctic Expedition Cruise Operators (AECO), þar sem þeir hafa unnið með nokkrum höfnum á Íslandi, Noregi, Færeyjum og Grænlandi. Verkefnið gengur út á að heimamenn, þar sem skemmtiferðaskip koma í höfn, leggja línurnar og móta stefnu um hvernig þeir vilja taka á móti farþegum skemmtiferðaskipa sem heimsækja svæðið, þannig að gestirnir njóti heimsóknarinnar og samfélagið njóti ávinnings af gestamóttökunni.\r\n\r\n<a href=\"https://www.aeco.no/guidelines/community-guidelines/akranes-community-guidelines/\">Hér má sjá leiðarvísirinn fyrir Akranes.</a>\r\n\r\n<a href=\"https://www.aeco.no/guidelines/community-guidelines/\">Hér má sjá link inn á alla staðbundna leiðarvísa.</a>",
  "innerBlocks": []
}
Nýr leiðarvísir fyrir gesti skemmtiferðaskipa á Akranesi - Skessuhorn