Með flökkueðli á fiskeríi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Maður kemur ekki að tómum kofanum hvað varðar sjóinn og fiskveiðar hjá Birni Björnssyni sjómanni. Hann hefur verið alla sína starfsævi á sjónum og er enn að, rær núna til strandveiða frá Stykkishólmi þar sem hann ólst upp. Hann hefur frá ýmsu að segja og sumar sögurnar minna helst á sjónvarpsþættina um verbúðina.\r\n\r\n„Ég er fæddur í Reykjavík en kem fjögurra ára í Stykkishólm og er uppalinn hér. Ég er ættaður úr Bjarneyjum, pabbi var fæddur þar. Ég hef mikið verið viðloðandi Flatey hjá Svönu og Magnúsi. Ég hef verið inni í trilluútgerð annað slagið. Fór með bróðursyni mínum 2010 og var með honum í tvö ár, en hann gerir út bát frá Skagaströnd. Þess á milli hef ég verið á stóru bátunum.\r\n\r\nÞetta hófst allt þegar ég var ráðinn á Þórsnesið 1975, þá að verða 16 ára gamall. Áður hafði ég verið með pabba á trillunni öll sumur frá því að ég var tíu ára gamall. Maður komst ekkert hjá því að vera með, ekki þar fyrir að mig langaði mjög til þess. Hann var orðinn veikur kallinn og dó 1976. Það var fyrir nútímahjartalækningar, hann deyr úr einhverju tengdu kransæðunum. Einhverju sem hægt væri að gera helling í núna. Það átti að senda hann í þræðingu, hann var með allra fyrstu mönnum í það. Þegar suður var komið tóku þeir af honum öll hjartalyfin og hann þoldi það ekkert og dó inni á spítala, 48 ára gamall.“\r\n\r\n<em>Sjá ítarlegt viðtal við Björn í Sjómannablaði Skessuhorns sem kom út í gær.</em>",
  "innerBlocks": []
}
Með flökkueðli á fiskeríi - Skessuhorn