{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Hólmarinn Magnús Þór Kristinsson, kallaður Maggi Kiddós eða Maggi langi, hefur stundað sjómennskuna frá því hann var lítill gutti. Hann hefur verið á ýmsum bátum um tíðina og farið á grásleppu, skak, netaveiðar og verið á línu svo dæmi séu tekin, en nú rær Maggi á trillunni sinni Kristborgu SH-108. Hann starfar að mestu leyti einn en fær þó liðsauka yfir vetrartímann. Blaðamaður Skessuhorns heimsótti Magga á heimili hans í Stykkishólmi á dögunum þar sem farið var yfir sjómannsferilinn.\r\n\r\n„Ég hef verið á sjó í 40 ár,“ byrjar Maggi frásögn sína. „Ég byrjaði fyrst árið 1978 á grásleppu hjá karli sem hét Ingvi Kristjáns, kallaður Golsi. Hann tók svakalega mikið í nefið og var alltaf allur út í tóbaki, alveg golsóttur,“ segir Maggi og hlær. „Eru ekki rollurnar golsóttar þegar þær eru einhvern veginn svona? Þess vegna fékk hann viðurnefnið Golsi,“ bætir hann við hugsi. „Pabbi byrjaði líka á sjó með honum Ingva nema bara mörgum árum á undan mér. Ég fór svo seinna með pabba á sjó. Líklega er ég búinn að vera samfleytt í þessu í rúm 40 ár, byrjaði 13 ára gamall.“\r\n\r\n<em>Sjá ítarlegt viðtal við Magnús Þór í Sjómannablaði Skessuhorns sem kom út í gær.</em>\r\n\r\n ",
"innerBlocks": []
}