„Við þurftum eiginlega að læra að ganga upp á nýtt“
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Freyja er nýtt og glæsilegt varðskip Landhelgisgæslunnar. Þó skipið sé nýtt er langt frá því að um borð séu eintómir nýliðar. Einn sá reynslumesti er Guðmundur Stefán Valdimarsson bátsmaður. Áður en hann steig um borð í Freyju sigldi hann með Óðni, Tý og Ægi, svo það er kannski ekki að undra þótt gömlu goðin skipi hjá honum sérstakan sess. Blaðamaður Skessuhorns leit inn til Guðmundar á heimili hans og konu hans Hjördísar Kvaran Einarsdóttur á Akranesi nýverið og fræddist um líf hans og merkan feril á sjó.\r\n\r\n„Ég segi alltaf að ég sé Ísfirðingur,“ segir Guðmundur með hlýju í röddinni. „Þar eru sporin mín, ég var mikið hjá móðurafa mínum og ömmu, Guðmundi Guðmundssyni og Guðrúnu Jónsdóttur. Ég er fæddur á Akranesi 3. október 1966. Faðir minn var héðan; Valdimar Jónsson loftskeytamaður, sonur Lilju Pálsdóttur og sr. Jóns M. Guðjónssonar. Móðir mín Jóna Margrét Guðmundsdóttir var hins vegar frá Ísafirði. Það æxlaðist þannig að ég átti mikinn hluta af uppvaxtarárunum fyrir vestan. Guðmundur afi var þar með útgerð, hann stofnaði á sínum tíma útgerðarfélagið Hrönn ásamt Ásgeiri G. Guðbjartssyni og fleirum og gerði út Guðbjargirnar.“\r\n\r\n<em>Sjá ítarlegt viðtal við Guðmund í Sjómannablaði Skessuhorns sem kom út í dag.</em>",
"innerBlocks": []
}
„Við þurftum eiginlega að læra að ganga upp á nýtt“ - Skessuhorn