Þetta er í blóðinu

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Oddur Halldórsson vinnur hjá Faxaflóahöfnum. Hann elst upp við sjómennsku, fór fyrstu róðrana tíu ára gamall með föður sínum. Í dag er hann með hafnsögubáta og dráttarbáta, en reri áður til fiskjar í yfir þrjá áratugi. Þá á hann hlut í bát á Akranesi. „Ég á hlut í bát sem er í höfninni uppi á Skaga með nokkrum skemmtilegum mönnum. Báturinn heitir Jón forseti. Einn aðaleigandinn heitir Jón Sigurðsson og er kallaður forseti,“ segir Oddur, en á meðal eigenda er Gísli Gíslason, fyrrum bæjarstjóri á Akranesi og hafnarstjóri.\r\n\r\nOddur átti ekki langt að sækja áhugann á sjónum, þar sem faðir hans átti bát. Eftir að skólaskyldu lauk komst ekkert annað að hjá honum en að fara á sjóinn.\r\n\r\n„Pabbi minn var sjómaður þannig að ég ólst upp við það. Fjölskyldan átti bát sem gekk vel, Jón Bjarnason. Við vorum átta systkini heima og þetta var eiginlega tólf manna heimili, en það gekk mjög vel að fiska á bátinn. Ég fór fyrst í róður tíu ára gamall. Báturinn var 35 tonn og við komum með 35 tonn að landi eftir daginn, þannig að það gekk mjög vel. Við vorum á netum og rerum vestur á Snæfellsjökul. Svo var Flóinn allur undir.\r\n\r\nÞað kom ekkert annað til greina fyrir mig en að fara á sjóinn. Mér gekk alltaf frekar illa í skóla, var með fötlun sem heitir lesblinda og fékk enga hjálp við því. Ég hataði skólann og hætti eftir skólaskylduna, sem var þá eftir það sem við kölluðum annan bekk, en þá er miðað við gagnfræðaskólann. En svo gekk mér vel þegar ég fór í nám í Stýrimannaskólanum, ég tók bæði vélanám og stýrimannanám.\r\n\r\n<em>Sjá ítarlegt viðtal við Odd í Sjómannablaði Skessuhorns sem kom út í dag.</em>",
  "innerBlocks": []
}
Þetta er í blóðinu - Skessuhorn