Borgarfjarðarbrúin mun að líkindum missa titil sinn, sem lengsta brú landsins, á næstu árum.

Sundabraut í forgangi hjá nýjum borgarstjórnarmeirihluta

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Nýr meirihluti Samfylkingar, Framsóknarflokks, Pírata og Viðreisnar í Reykjavík var kynntur á mánudaginn. Í samstarfssáttmála flokkanna kemur fram skýr vilji um að hefja gerð umhverfismats vegna Sundabrautar. Áætlað er að lagning Sundabrautar muni skila á bilinu 186-238 milljarða króna ábata eftir því hvort valin verði brú eða göng yfir Kleppsvík. Felst sá sparnaður að mestu leyti í minni akstri, útblæstri og mengun og styttri ferðatíma vegfarenda. Ef brú verður fyrir valinu tekur hún titilinn lengsta brú landsins af Borgarfjarðarbrúnni og verður 1172 metra löng, með fjórum akreinum og göngu- og hjólaleið. Hún myndi rísa í 35 metra hæð yfir hafflötinn með 30 metra siglingahæð og 100 metra breiðri siglingarennu undir henni miðri. Með þessu yrði hægt að sigla undir brúna til að nýta áfram hafnarbakka innan hennar.\r\n\r\n<strong>Hálftíma stytting</strong>\r\n\r\nSundabraut mun hafa gríðarlega þýðingu fyrir samgöngur, dreifa álagi, leysa umferðarhnúta og styrkja öryggisleiðir. Einnig muni hún stytta vegalengdir fyrir alla þá sem ferðast innan og til og frá höfuðborgarsvæðinu, óháð ferðamáta. Fyrir íbúa Vesturlands mun Sundabraut líklega stytta ferðina til höfuðborgarsvæðisins um hálftíma.\r\n\r\nÁætlað er að framkvæmdir geti hafist árið 2026, en auk umhverfismatsins er framundan víðtækt samráðsferli og nauðsynlegar breytingar á aðalskipulagi. Gert er ráð fyrir að fjármagna framkvæmdirnar með gjaldtöku af umferð, sem hefjist þegar Sundabraut er tekin í notkun og ljúki innan 30 ára.\r\n\r\n<strong>Arðsamasta framkvæmdin</strong>\r\n\r\nSigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra segir á vef Stjórnarráðsins, að lagning Sundabrautar sé ein arðsamasta framkvæmd sem um getur hér á landi. Á það einnig við er varðar akstur á höfuðborgarsvæðinu sjálfu því heildarakstur þar gæti minnkað um 150 þús. km á hverjum sólarhring. Eins og kemur fram í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar miðast undirbúningur við að framkvæmdir hefjist 2026 og Sundabrautin verði tekin í notkun 2031. Áætlaður kostnaður við undirbúninginn nemur um 1,5 milljarða kr. til ársins 2026 þegar stefnt er að framkvæmdir hefjist.",
  "innerBlocks": []
}
Sundabraut í forgangi hjá nýjum borgarstjórnarmeirihluta - Skessuhorn