Jóhann Már Þórisson um lífið á sjónum: „Mér finnst þetta æði“
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "„Ég byrjaði í rauninni að fara á sjó þegar ég kem hingað,“ segir Jóhann Már Þórisson kokkur og háseti um borð í Bárði SH sem rær frá Rifi. Jóhann Már er smiður í grunninn og hefur starfað lengst af við smíðar með föður sínum Þóri Jónssyni húsasmið. Jóhann er með smíðaverkstæði á Rifi og áður en hann hóf störf um borð í Bárði SH var hann í því að gera húsgögn fyrir fólk, bæði hanna þau og búa til, undir nafninu Sheepa. Hann býr ásamt konu sinni og fjórum börnum í Rifi. „Í dag er aðal vinnan mín að vera á sjó og það er búið að vera svoleiðis í eitt ár núna,“ segir Jóhann. Bárður SH var í slipp þegar blaðamaður Skessuhorns heimsótti Jóhann á heimili hans og var hann að bíða eftir símtalinu að fá að komast út á sjó aftur. „Mér finnst þetta æði. Eins og núna þá bara hlakkar mig til að báturinn fari niður.“\r\n\r\n \r\n\r\n<em>Sjá ítarlegt viðtal við Jóhann Má í Sjómannablaði Skessuhorns sem kom út í dag.</em>",
"innerBlocks": []
}