Pétur skipstjóri að taka fiskinn inn fyrir. Ljósm. AF

Í netatúr á Flákahornið með Bárði SH

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "„Mæting klukkan sex,“ sagði Pétur Pétursson útgerðarmaður og skipstjóri á netabátnum Bárði SH, þegar leitast var eftir því við hann að fréttaritari Skessuhorns fengi að fara í einn myndatökuróður með þessari landsþekktu aflakló. Mætt var í Rifi og það vel fyrir klukkan sex að morgni sunnudagsins 3. apríl og var megnið af níu manna áhöfn komið um borð, en alls eru tólf menn í áhöfn og skiptast á að fara í frí.\r\n\r\nRóið var á Flákahornið og er það um einn og hálfur tími sem fór í stímið. Menn ýmist gengu til koju eða fóru í kaffispjall og góðan morgunverð á útstíminu, sem matsveinninn Sveinbjörn Benediktsson reiddi fram eins og á fimm stjörnu veitingastað. Menn ræddu að sjálfsögðu aflabrögð og veðurfar. Var áhöfnin sammála um að veður hafi ekki leikið við sjómenn þessa vertíðina. Þá var nýliðinn marsmánuður áhöfninni gjöfull en í mars var aflinn 1.183 tonn og þarf hrausta sjómenn til þess að ná slíkum afla. Er óhætt að segja að áhöfnin á Bárði séu sannir víkingar til vinnu og hvergi slegið af, ekki fremur en í þessum túr 3. apríl.\r\n\r\nByrjað var að draga netin um klukkan hálf átta en alls voru dregnar sjö trossur og gekk drátturinn vel. Aflinn var mjög góður, eða 48 tonn og menn slógu ekkert af við vinnuna og var áhöfnin öll eins og vel smurð vél. Engan veikan hlekk að finna í þessari samhentu áhöfn og var mikið hlegið og greinilega menn með góðan húmor um borð.\r\n\r\nFyrr en varði var búið að draga allar trossurnar sjö og var þá gengið frá og þrifið og snæddur hádegismatur, sem var nætur saltaður þorskur. „Já, vinur minn,“ sagði Friðrik Steingrímsson; „hér borðum við það sem við veiðum.“\r\n\r\nKomið var að landi í Rifi um klukkan 15:30 og hófst þá löndun um leið og komið var að bryggju og gekk hún vel fyrir sig. Það voru þreyttir en ánægðir sjómenn sem gengu skömmu síðar í land, sáttir með aflann, félagsskapinn og vinnuna sína.\r\n\r\n<em>Sjá ítarlega myndskreytta frásögn í Sjómannablaði Skessuhorns sem kom út í dag</em>",
  "innerBlocks": []
}
Í netatúr á Flákahornið með Bárði SH - Skessuhorn