„Ég hef mikla ástríðu fyrir sjónum“

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Grzegorz Oleszczuk fæddist í Biala-Podlaska í Póllandi árið 1993. Þar ólst hann upp og gekk í skóla, varð stúdent og síðan tók við nám í bifvélavirkjun. Hann vann við iðn sína meðfram skólanum, en skömmu eftir útskrift tók hann sig upp og flutti til Grundarfjarðar þar sem hann fór á sjóinn. Og er enn og verður eins lengi og heilsan leyfir, ef hann fær einhverju um það ráðið.\r\n\r\n„Ég búinn að vera á Hring í fjögur ár. Þetta er fyrsti togarinn sem ég hef verið á, áður var ég á línubátum. Var á Grundfirðingi og byrjaði sjóaraferilinn þar og svo á Rifsnesi. Ég var 21 árs þegar ég fór fyrst á sjóinn, það var árið 2013. Ég var fjögur ár á Grundfirðingi, eitt ár á Rifsnesi og hef verið á Hringnum síðan. Bróðir minn dró mig á sjóinn, hann er á Runólfi. Ég lauk námi í bifvélavirkjun en fór svo til Íslands á sjóinn. Það var fínt að vinna við bifvélavirkjun á meðan ég var í skóla, en ég kann betur við mig á sjónum. Ég kláraði skólann vorið 2013 og fór í sumarfrí, en um haustið fór ég til Íslands og á sjóinn. Þá var að byrja ný vertíð.“\r\n\r\n&nbsp;\r\n\r\n<em>Sjá ítarlegt viðtal við Grzegorz í Sjómannablaði Skessuhorns sem kom út í dag.</em>",
  "innerBlocks": []
}
„Ég hef mikla ástríðu fyrir sjónum“ - Skessuhorn