„Allir bæjarbúar unnu við fisk að einhverju leyti“
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Ólsarinn Ríkarð Ríkarðsson hefur ýmislegt gert um ævina. Byrjaði ungur að fara á sjó eins og tíðkaðist í Ólafsvík á þeim árum og seinna færðist hann óvænt yfir í ferðaþjónustuna sem átti vel við hann. Í dag starfar Ríkarð hjá Fiskistofu en fer þó þegar hann getur nokkra túra um landið með ferðamenn. Skessuhorn heimsótti Ríkarð í Stykkishólmi á dögunum þar sem lífið til sjós var rifjað upp en einnig ferðamennskan.\r\n\r\n„Ég byrjaði mjög ungur sem sjómaður,“ rifjar Ríkarð upp, en hann var einungis 15 ára gamall þegar hann var farinn að vinna á launum úti á sjó, réði sig á bát frá Patreksfirði sem var að fara á grálúðuveiðar með línu og svo var siglt með aflann til Hull. „Línan var beitt um borð og réði ég mig sem beitningar mann. Ég var vanur að beita og hafði gert það með skóla og sem sumarvinnu,“ segir Ríkarð. „Ég hætti í skóla, tók sem sagt ekki tíunda bekkinn. Þetta snerist allt um vinnu á þessum tíma,“ bætir hann við.\r\n\r\n<em>Sjá ítarlegt viðtal við Ríkarð í Sjómannablaði Skessuhorns sem kom út í dag.</em>",
"innerBlocks": []
}
„Allir bæjarbúar unnu við fisk að einhverju leyti“ - Skessuhorn