Farandsýningin Rokk á flakki hefst á Vogi á morgun

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Bjarni Þór Bjarnason listamaður og Ásta Salbjörg Alfreðsdóttir eiginkona hans eru nú að ferðbúast, pakka málverkum, trönum og viðlegubúnaði í sendibíl sinn og aka í sannkallað óvissuferð . Hefja þau farandsýninguna <em>Rokk á flakki</em> á Hótel Vogi á Fellsströnd í Dölum á morgun, föstudag. Allir eru velkomnir á sýningu Bjarna, en verkin verða ekki til sölu. Þau munu staldra við í nokkra daga á Vogi, en halda síðan för áfram um landið. Nánara sýningarplan liggur ekki fyrir, enda er sýningin í senn frí þeirra hjóna og valdir staðir með tilliti til veðurs. „Við ætlum að flakka um landið, stilla verkunum upp á trönur, dvelja á hverjum stað í nokkra daga, en pakka síðan öllu saman og aka á næsta stað,“ segir Ásta Salbjörg í samtali við Skessuhorn. Þema á sýningunni eru rokkstjörnur liðinna tíma, heimsþekktar persónur.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_53927\" align=\"alignnone\" width=\"600\"]<img class=\"wp-image-53927 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/06/Farandsyningin-Rokk-a-flakki-byrjar-a-Vogi_1-600x800.jpg\" alt=\"\" width=\"600\" height=\"800\" /> Bjarni Þór í góðum félagsskap Bítlanna fyrr í dag.[/caption]",
  "innerBlocks": []
}
Farandsýningin Rokk á flakki hefst á Vogi á morgun - Skessuhorn