Þrír sundmenn frá SA með landsliðinu í Glasgow

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Landslið Íslands í sundi tók þátt í Glasgow International Swim Meet um helgina. Sundfélag Akraness átti þar þrjá fulltrúa; þau Einar Margeir Ágústsson, Kristján Magnússon og Guðbjörgu Bjarteyju Guðmundsdóttur. Þetta var þeirra fyrsta stórmót erlendis og mikilvæg reynsla fyrir framtíðina. Landsliðshópurinn allur stóð sig mjög vel á þessu móti.\r\n\r\nEinar Margeir átti mjög góða helgi, þar sem hann bætti sig í öllum greinum sínum og setti þrjú Akranesmet. Í 50m bringusundi synti hann á 29,10 sem er aðeins 0,02 frá Íslandsmeti í unglingaflokki. Það skilaði honum 2. sæti í unglingaflokki og 10. sæti í opnum flokki. Hann var einnig í 2. sæti í unglingaflokki í 100m bringusundi en þar synti hann á tímanum 1.04.80, sem skilaði 6. sæti í opnum flokki. Í 200m bringusundi náði hann einnig 2. sæti í unglingaflokki á timanum 2.24.23, sem var 12. sæti í fullorðinsflokki.\r\n\r\nKristján Magnússon keppti í 50m, 100 og 200m skriðsundi. Hann bætti sig í 100m skriðsundi og þar synti hann á 55,58 en synti aðeins hægar í úrslitasundi. Hann var alveg við sinn tíma í 50m skriðsundi þar sem hann synti á 24,87 í úrslitasundi, það skilaði honum 5. sæti í unglingaflokki. Kristján synti mjög flott 200m skrið um morguninn og var alveg við sinn besta tíma 2.02.98. Úrslitasundið gekk ekki alveg upp, mikill vilji en aðeins á eftir tímanum í morgunhlutanum.\r\n\r\nBjartey sem er á sínu fyrsta ári í fullorðinsflokki keppti í 50m, 100m og 200m skriðsundi og 50m flugsundi. Í 50m flugsundi var hún alveg við sinn besta tíma. Bjartey byrjaði með miklum krafti í 50m skrið og var mjög hröð á fyrstu 25 metrunum en var ekki alveg í toppi tæknilega og synti á aðeins slakari tíma eða 28,33. Í 200m skriðsundi synti hún með góðri tækni á tímanum 2.14.86 sem er 3. besti tíminn hennar. Í 100m skriðsundi synti hún mjög vel síðustu 50m og kom i mark á 1.01.26.\r\n\r\nNæsta verkefni hjá sundfólkinu er sumarmót Íslands sem fram fer í Ásvallalaug 18-19. júní nk.",
  "innerBlocks": []
}
Þrír sundmenn frá SA með landsliðinu í Glasgow - Skessuhorn