Gamla brúin yfir Skraumu og til hægri sést hvar slegið hefur verið upp fyrir stöplum nýrrar brúar. Ljósm. Sumarliði Ásgeirsson.

Tvær brýr á Skógarstrandarvegi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Í árslok í fyrra skrifuðu Vegagerðin og Borgarverk undir samning um endurbyggingu Snæfellsnesvegar á Skógarströnd á um 5,4 km kafla. Var þetta með stærri útboðum í vegaframkvæmdum á Vesturlandi í langan tíma. Tilboð Borgarverks hljóðaði upp á 970 milljónir króna og var 12,6% yfir kostnaðaráætlun. Innifalið í verkinu er bygging tveggja brúa, á Skraumu og Dunká. Vegurinn verður að mestu endurbyggður í vegstæði núverandi vegar með nokkrum lagfæringum.\r\n\r\nÁ vef Vegagerðarinnar kemur fram að brúin á Skraumu verði 43 m löng í þremur höfum og brúin á Dunká 52 m löng. Gert er ráð fyrir að í flóðum eða klakahlaupum geti vatn og ís náð upp á súlur brúnna án þess að valda skaða. Áætlað er að verkinu verði að fullu lokið sumarið 2023.",
  "innerBlocks": []
}
Tvær brýr á Skógarstrandarvegi - Skessuhorn