Starfsmenn eru hæstánægðir með nýju aðstöðuna. Ljósm. vaks

Fjöliðjan komin á nýjan stað

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Hluti af starfsemi Fjöliðjunnar á Smiðjuvöllum 9 á Akranesi var flutt um miðjan apríl yfir götuna í nýtt húsnæði á neðstu hæð á Smiðjuvöllum 28. Að sögn Ástu Pálu Harðardóttur yfirþroskaþjálfa hjá Fjöliðjunni vinna allir starfsmenn á báðum stöðum en á nýja staðnum er meira unnið við pökkun og hreinlegri vinnu og það henti mörgum betur. „Það er rólegri stemning hérna en grófari vinna hinum megin eins og flöskumóttakan. Það er róterað á milli staða og hver og einn er með sitt dagsskipulag eins og hentar þeim.“\r\n\r\nÁsta Pála segir að nýja húsnæðið sé bjart, það sé gott loft í húsinu. Starfsemin þyrfti þó meira pláss ef hún mætti einhverju ráða. Þau séu með alls kyns verkefni í opnu rými og það henti ekki öllum að vera þar. Stundum gleymist einnig að Fjöliðjan er vinnustaður en ekki afþreyingarstaður. Fram undan hjá þeim er að vinna með bænum að því að á milli vinnustaðanna geti þau verið örugg með samgöngur, að þau geti gengið á milli því það vanti göngustíg og gangbraut og það sé næsta skrefið.",
  "innerBlocks": []
}
Fjöliðjan komin á nýjan stað - Skessuhorn