Védís Agla Reynisdóttir, dúx FVA á vorönn 2022, ásamt Dröfn Viðarsdóttur aðskólastjórameistara og Steinunni Ingu Óttarsdóttur skólameistara. Ljósm. fva.

Dúxaði frá FVA með 9,66 í meðaleinkunn

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Védís Agla Reynisdóttir frá Akranesi hlaut viðurkenningu fyrir bestan námsárangur á stúdentsprófi frá FVA, en hún útskrifaðist af náttúrufræðibraut með 9,66 í meðaleinkunn. Við úskrift í liðinni viku fékk hún viðurkenningar fyrir góðan námsárangur í fjölda greina, m.a. Raungreinaverðlaun Háskólans í Reykjavík.\r\n\r\nAðspurð segir Védís Agla ekki mikið liggja að baki árangurs síns, en metnaður og það að vilja standa sig vel í námi hafi komið henni á þennan stað. ,,Eftir að ég sá einkunnirnar mínar eftir fyrstu önnina í fjölbrautaskólanum setti ég mér þær kröfur að leggja mig alltaf 100% fram og skila öllu eins vel af mér og ég gæti.“ Nú ætlar hún hinsvegar að taka sér námspásu í eitt ár en stefnir á háskólanám haustið 2023 þar sem heilbrigðissviðið heillar hvað mest. ,,Ég er ekki búin að ákveða hvað ég ætla að læra í háskóla en það verður örugglega eitthvað á heilbrigðissviði, kannski læknirinn. Raungreinar, efnafræði og líffræði hafa verið mínar uppáhaldsgreinar í skólanum svo ég stefni á háskólanám tengt því.“",
  "innerBlocks": []
}
Dúxaði frá FVA með 9,66 í meðaleinkunn - Skessuhorn