Nýi sjódýfingapallurinn við Bakkatún. Enn á eftir að bæta við einni hæð til að ná átta metrunum. Ljósm. vaks.

Sjódýfingapallur að koma á Akranes

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Á bryggjunni við endann á Bakkatúni á Akranesi er þessa dagana að rísa sjódýfingapallur. Það eru hjónin Konni Gotta og Jódís Lilja Jakobsdóttir frá Hoppland.is sem standa að þessu. Konni er frá Ólafsfirði þar sem hann byrjaði í kletta- og sjóstökki og dýrkar allt sem heitir jaðarsport og útivist. Jódís er útskrifuð grunnskólakennari og hefur starfað með börnum og unglingum í 15 ár. Blaðamaður Skessuhorns heyrði í Konna og segir hann þau heldur betur vera spennt fyrir þessu öllu saman og lofar lífi og fjöri í allt sumar á Skaganum. Gríðarleg aðsókn hefði verið í fyrra á pallana sem voru staðsettir á bryggjunni við Sævarhöfða í Grafarvogi en ekki fékkst leyfi fyrir þeim þar áfram. Hefðu þau þá heyrt í fulltrúum Akraneskaupstaðar sem tók þeim opnum örmum og vildi Konni sérstaklega hrósa Sævari Frey Þráinssyni bæjarstjóra fyrir jákvæð viðbrögð en þau gerðu sex mánaða samning við Faxaflóahafnir um afnot af bryggjunni. Dýfingapallarnir sem þau notuðu við Sævarhöfða voru gerðir úr Euro pallettum en þeir sem verið er að smíða núna eru vottaðir álpallar og eru alls átta metrar að hæð. Þá hafa þau í hyggju um helgar í sumar að bjóða fólki að prófa vatnshoppubelg (inflatable water blob) sem verði vonandi kominn á opnunardaginn en það muni skýrast fljótlega.\r\n\r\nLaugardaginn 28. maí er ætlunin að opna og þá geta allir prófað að hoppa niður af pallinum allt að tíu metrum ofan í sjó og sigrast á óttanum. Konni og Jódís standa fyrir hoppnámskeiðum fyrir 10 til 14 ára krakka á laugardögum í sumar frá klukkan tíu til tólf. Innifalið er leiga á blautbúningi, kennsla og pizza og kostar námskeiðið tíu þúsund krónur. Þetta námskeið er hugsað til að krakkarnir kynni sér öryggi þegar kemur að klettastökki og til að hjálpa þeim að komast út fyrir boxið. Mikið hefur verið talað um kvíða og annað hjá börnum á síðustu árum og vilja þau meina það að hoppa í ískalt vatn sé eitt besta meðalið við kvíða. Á þessu námskeiði fá krakkarnir að skora á sjálfa sig og sigra hausinn eins og segir á heimasíðu hoppland.is.\r\n\r\nHægt verður að hoppa á þessum glænýja sjódýfingapalli í allt sumar en opnunartíminn er mánudaga til fimmtudaga frá klukkan 13 til 20 og á laugardögum og sunnudögum frá klukkan 12 til 22. Aðgangur fyrir 16 ára og eldri er krónur 1500 og 1000 krónur fyrir 15 ára og yngri. Einnig verður hægt að leigja blautbúninga á svæðinu á 2000 krónur.",
  "innerBlocks": []
}
Sjódýfingapallur að koma á Akranes - Skessuhorn