
Hjarðarholtskirkja í Borgarfirði er ein af kirkjunum fjórum sem gengið verður að. Ljósm. sþ
Pílagrímagöngur fyrirhugaðar í Borgarfirði í sumar
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Núverandi og fyrrverandi prestar Stafholtsprestakalls í Borgarfirði standa í sameiningu fyrir pílagrímagöngu milli kirkna í sókninni í sumar. Göngurnar mun leiða Elínborg Sturludóttir dómkirkjuprestur, sem gegndi embætti sóknarprests í Stafholti 2010-2019. Starfandi sóknarprestur, Anna Eiríksdóttir, leiðir svo einnig gönguna með Elínborgu.\r\n\r\nFyrsta gangan fer af stað föstudaginn 6. júní þar sem gengið verður frá Hvammskirkju í Norðurárdal um Grjótháls og að Norðtungukirkju. Fer gangan af stað klukkan 14 og er áætlað að hún taki um fjórar klukkustundir en leiðin er um 20 kílómetrar. Föstudaginn 10. júlí verður síðan gengið frá Norðtungukirkju að Hjarðarholtskirkju og síðasti angi göngunnar verður svo frá Hjarðarholtskirkju að Stafholtskirkju. Samtals er gönguleiðin um 42 kílómetrar. Hvetja þær Anna og Elínborg fólk til að njóta samvista í náttúrunni og sameinast í skemmtilegri göngu í sumar.",
"innerBlocks": []
}