
Gunnar Bjarnason SH-122. Ljósm. af.
Hraðfrystihús Hellissands kaupir Gunnar Bjarnason SH
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Skrifað hefur verið undir samning um kaup Hraðfrystihús Hellissands á Útgerðarfélaginu Hauki ehf. í Ólafsvík sem á og rekur dragnótarbátinn Gunnar Bjarnason SH-122. Kaupin eru þó háð samþykki Samkeppniseftirlitsins sem alla jafnan tekur mánuð í slíka afgreiðslu. Ólafur Rögnvaldsson eigandi HH segir að kaupunum fylgi 300 þorskígildistonn. Báturinn verður áfram gerður út frá Snæfellsbæ en um borð er fimm manna áhöfn.\r\n\r\n„Með þessum kaupum erum við í Hraðfrystihúsi Hellissands að styrkja enn frekar útgerð okkar á utanverðu Snæfellsnesi. Fyrirtæki okkar var upphaflega stofnað fyrir fólkið í byggðarlaginu og með þessum kaupum erum við að styrkja fyrirtækið og þar með einnig byggðarlagið,“ segir Ólafur.",
"innerBlocks": []
}