Formlegar meirihlutaviðræður S – flokkanna að hefjast á Akranesi
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "„Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hafa ákveðið að hefja formlegar viðræður um meirihluta samstarf í Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar. Viðræður hefjast á morgun laugardag og er áætlað að þeim ljúki um miðja næstu viku,“ segir í tilkynningu sem var að berast frá þeim Valgarði Lyngdal Jónssyni oddvita Samfylkingarinnar og Líf Lárusdóttur oddvita Sjálfstæðisflokksins á Akranesi.\r\n\r\nEins og fram kom í frétt Skessuhorns í morgun slitnaði í gær upp úr viðræðum sem fyrrum samstarfsflokkar í bæjarstjórn hófu á mánudag; Samfylkingar og Framsóknar með frjálsum. Flokkarnir náðu einfaldlega ekki saman á fyrstu stigum viðræðna og því hafa Samfylking og Sjálfstæðisflokkur nú ákveðið að hefja viðræður um myndun meirihluta. Hver flokkur um sig, Framsóknarflokkur með frjálsum, Samfylking og Sjálfstæðisflokkur, hefur þrjá fulltrúa í bæjarstjórn eftir kosningarnar á laugardaginn.",
"innerBlocks": []
}
Formlegar meirihlutaviðræður S – flokkanna að hefjast á Akranesi - Skessuhorn