Hanna Ágústa lærir klassískan söng við Tónlistarháskólann í Leipzig, Þýskalandi. Ljósm. Gunnlöð Jóna.

Hanna Ágústa bar sigur úr býtum í keppninni Ungir einleikarar

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Miðvikudaginn 25. maí næstkomandi mun Hanna Ágústa Olgeirsdóttir sópransöngkona úr Borgarnesi stíga á svið með Sinfóníuhljómsveit Íslands ásamt tveimur öðrum sigurvegurum úr keppninni Ungir einleikarar. Keppnin er haldin af Sinfóníuhljómsveit Íslands og Listaháskóla Íslands ár hvert en í henni takast á íslenskir hljóðfæraleikarar og söngvarar sem stunda háskólanám í tónlist, bæði hérlendis og erlendis. Keppnin fór fram síðastliðið haust en verðlaun í keppninni eru að koma fram sem einleikari/ einsöngvari með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Upphaflega áttu þeir tónleikar að vera haldnir í janúar en vegna Covid faraldursins þurfti að fresta tónleikunum þar til nú. Tónleikarnir fara fram í Eldborgarsal Hörpu.\r\n\r\nHanna Ágústa er uppalin í Borgarnesi og stundaði nám við Tónlistarskóla Borgarfjarðar alla sína barnæsku. Í dag lærir hún klassískan söng við Tónlistarháskólann í Leipzig undir handleiðslu Prófessorsins Carolu Guber. Námið hefur hún stundað frá 2017. Í sumar mun hún útskrifast frá skólanum og hyggst flytjast aftur búferlum til Íslands en hún hefur mikinn áhuga á söngkennslu og hefur einnig numið óperuleikstjórn. Hanna Ágústa er fjórði Borgfirðingurinn til að vinna nefnda keppni en áður hafa hana unnið þau Eygló Dóra Davíðsdóttir, Birgir Þórisson og Anna Þorvaldsdóttir. Keppnin er mikils metin og vegur mikið hjá íslenskum tónlistarnemum. Hanna Ágústa segir sigurinn mikinn heiður og hlakkar til að fá að láta ljós sitt skína í Eldborgarsal.",
  "innerBlocks": []
}
Hanna Ágústa bar sigur úr býtum í keppninni Ungir einleikarar - Skessuhorn