Stjórn Ungmennaráðs Vesturlands. Frá vinstri: Bjarki Rúnar Ívarsson, Vilhjálmur, Hanna Imgront, Heiðrún Edda Pálsdóttir og Jóhanna Vigdís Pálmadóttir.

„Við biðjum um að það sé hlustað“

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Ungmennaráð Vesturlands var stofnað árið 2020 og er skipað fulltrúum ungmennaráða í fimm sveitarfélögum á Vesturlandi. Formaður ráðsins er Vilhjálmur Ingi Ríkharðsson í Borgarnesi. Blaðamaður Skessuhorns kom að máli við hann til að heyra af áherslum ungmenna og skilaboðum sem þau hafa til frambjóðenda í sveitarstjórnarkosningunum næstkomandi laugardag.\r\n\r\n<strong>Lífsleiknikennslu ábótavant</strong>\r\n\r\n„Við höfum verið dugleg að ræða saman og komum t.d. síðast saman á ungmennaþingi Vesturlands í Lýsuhólsskóla í mars,“ segir Vilhjálmur. Okkur liggur mikið á hjarta og höfum margt að segja. Við viljum t.d. sjá breytingar í kennslu í lífsleikni í skólum og finnst einnig vanta meira framboð af slíku námi yfirleitt. Lífsleiknin í dag gengur mikið til út á að „skamma“ nemendur vegna þess sem betur má fara. En við viljum frekar kalla eftir meiri fræðslu í þessu fagi, og samtali um hvaða áherslur okkur finnst vanta í þá lífsleikni sem er kennd núna. Tímarnir breytast svo hratt og kennslan þarf að vera í sífelldri endurskoðun. Það er ýmislegt sem þarf að koma í meira mæli þar inn, svo sem fyrirlestrar sérfróðs fólks um hluti eins og kynfræðslu, kynjafræðslu og sálfræði. Svo þurfa kennararnir að fylgja þessu eftir með samtölum eftir að fyrirlestrunum lýkur.“\r\n\r\n<strong>Aðstaða fyrir félagsstarf</strong>\r\n\r\nVilhjálmur segir að það hafi líka komið fram á ungmennaþinginu að íþróttaaðstaða þyrfti að vera góð og verði að vera fyrir fjölbreytta notkun. Þannig fjölgi íþróttagreinunum sem hægt er að leggja stund á og þar með afþreyingarmöguleikum ungmenna. „Svo þarf að vera vandað félagsstarf og góð aðstaða fyrir það,“ segir Vilhjálmur. „Svo ég nefni dæmi hér í Borgarnesi þá þarf að fara að gera félagsmiðstöð unglinga í Óðali eitthvað til góða, húsið hefur eiginlega verið óbreytt í mörg ár og lítið gert fyrir það. Svo þarf að skipuleggja félagsstarf fyrir ungt fólk í Hjálmakletti (aðsetur Menntaskóla Borgarfjarðar) nokkrum sinnum í viku og hafa opin hús. Okkur finnst líka það vera góð hugmynd að æskulýðsfulltrúi sé til staðar til að halda skipulega utan um allt félagsstarf ungmenna.“\r\n\r\nVilhjálmur nefnir líka að í Dölum þyrfti að bæta félagsmiðstöðina. Í Stykkishólmi þyrfti að gera það sama, húsnæðið væri ekki gott og krökkum liði ekki vel þar auk þess sem aðgengi væri ábótavant. Ungt fólk hefði bent á að gamla Eldfjallasafnið væri ekta sem félagsmiðstöð.\r\n\r\nEinnig nefnir hann að efla þyrfti íþróttaaðstöðu á stöðum eins og í Hvalfjarðarsveit og að efla tómstundabíl þaðan á Akranes og í Borgarnes fyrir íþróttaæfingar. Ungmenni á Akranesi bentu á að það vantaði fleiri hjóla- og göngustíga. Leikvellir/fótboltavellir væru orðnir gamlir og lélegir. Frá ungu fólki í Snæfellsbæ heyrðist að lengja þyrfti opnunartíma sundlauga og hafa opið um helgar, og bjóða þyrfti upp á tómstunda- og/eða almenningsakstur um helgar á milli Ólafsvíkur, Rifs og Hellissands.\r\n\r\n<strong>Hlusta á unga fólkið</strong>\r\n\r\nUnga fólkið á Vesturlandi var einnig sammála um að það ætti að hætta að leggja fyrir próf í íþróttum, það hefði neikvæð áhrif á andlega líðan í íþróttum og ýtti undir neikvæða líkamsímynd.\r\n\r\nSíðast en ekki síst segir Vilhjálmur að auka þurfi aðgengi að sálfræðiþjónustu. Sálfræðingur þyrfti að vera til staðar á öllum heilsugæslustöðvum og þar gætu ungmenni fengið tíma án endurgjalds. „Ýmislegt fleira kom fram á þinginu okkar og sveitarstjórnarmenn geta kynnt sér það í fundargerð. Við biðjum um að það sé hlustað á raddir ungs fólks og teljum að breytingar í samráði við okkur muni hafa góð áhrif bæði á líkamlega og andlega heilsu ungs fólks,“ segir hann að lokum.",
  "innerBlocks": []
}
„Við biðjum um að það sé hlustað“ - Skessuhorn