Alexander Davey í loftköstunum í leiknum. Ljósm. Lárus Árni Wöhler

Skagamenn töpuðu stórt gegn Valsmönnum

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Valur og ÍA mættust í gær í 5. umferð í Bestu deild karla í knattspyrnu og fór leikurinn fram á Hlíðarenda en Valur fagnaði 111 ára afmæli sínu einmitt í gær. Lítið markvert gerðist í fyrri hálfleiknum, hvorugt liðið tók mikla áhættu og leikurinn lítt fyrir augað. Á 24. mínútu fengu Skagamenn skyndisókn og eftir góða sendingu frá Kaj Leó í Bartalsstovu fékk Gísli Laxdal Unnarsson boltann en skaut yfir úr dauðafæri. Eftir því sem leið á fyrri hálfleikinn sóttu Valsmenn meira og uppskáru loks mark á lokamínútunni. Valsmaðurinn Birkir Heimisson sendi langa sendingu upp að endamörkum hægra megin þar sem Birkir Már Sævarsson lagði boltann út í vítateig á Patrick Pedersen sem skoraði af miklu öryggi, staðan í hálfleik því 1-0 fyrir Val.\r\n\r\nÍ seinni hálfleik var alger einstefna að marki Skagamanna og útkoman eftir því. Árni Snær Ólafsson varði vel í tvígang áður en Valsmenn skoruðu sitt annað mark eftir rúmlega klukkutíma leik. Árni Snær varði þá frá Pedersen í dauðafæri, boltinn hrökk síðan til Arnórs Smárasonar sem lagði hann snyrtilega á Tryggva Hrafn Haraldsson sem skoraði sitt fyrsta mark í sumar. Skagamenn virtust enn vankaðir því þremur mínútum síðar fengu þeir á sig þriðja markið. Guðmundur Andri Tryggvason jók þá forskotið enn meir þegar hann skoraði eftir sendingu frá Arnóri. Fjórða og síðasta mark leiksins kom á 72. mínútu en þá átti Alexander Davey slaka sendingu úr vörninni, beint á Birki Heimisson sem fann Tryggva Hrafn sem skrúfaði boltann laglega í fjærhornið og gulltryggði stórsigur Valsmanna, lokatölur 4-0.\r\n\r\nÍA hefur nú tapað síðustu tveimur leikjum með markatölunni 1-9 eftir að hafa aðeins fengið á sig þrjú mörk í fyrstu þremur leikjunum og eru nú í sjöunda sæti með fimm stig eftir fimm leiki. Svo virðist vera að vandræðagangurinn hjá ÍA í vörninni sé að dúkka upp aftur eins og oft var síðasta sumar en þess ber þó að geta að Breiðablik og Valur virðast firnasterk í byrjun móts. Þau sitja í tveimur efstu sætum Bestu deildarinnar, Breiðablik er með 15 stig eftir fimm leiki og Valur með 13 stig eftir jafnmarga leiki. Liðið sem er í þriðja sæti er KA frá Akureyri sem er einnig með 13 stig eins og Valur en þeir eru einmitt næstu andstæðingar ÍA í deildinni. Sá leikur fer fram á sunnudaginn á Akranesvelli og hefst klukkan 17.",
  "innerBlocks": []
}
Skagamenn töpuðu stórt gegn Valsmönnum - Skessuhorn