Hjónin Mykola Kravets og Olena Sheptytska í vinnustofunni í Grundarfirði. Ljósm. tfk.

Listamenn á flótta hafa nú komið sér fyrir í Grundarfirði

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Hjónin Mykola Kravets og Olena Sheptytska eru nýkomin til Íslands en hafa sótt um alþjóðlega vernd hér á landi. Þau eru nýbúin að gifta sig og voru í brúðkaupsferð í Tyrklandi þegar stríðið braust út í heimalandi þeirra Úkraínu. Þau leituðu allra leiða til að komast í öruggt skjól sem þau fengu á endanum í Grundarfirði.\r\n\r\nBæði starfa þau Mykola og Olena sem listamenn og hönnuðir og unnu við það í Úkraínu. Eftir að hafa sent fjölda skilaboða á staði, sem bjóða upp á gistingu fyrir listamenn, fengu þau loks svar frá Thoru Karlsdóttur sem rekur ArtAk350 í Grundarfirði. Thora fór strax á stúfana og hafði samband við Björgu Ágústsdóttur bæjarstjóra um íbúð fyrir þau, en gistingin sem Thora rekur er uppbókuð næstu mánuðina. Björg brást skjótt við og fengu þau litla íbúð í Grundarfirði. Svo var auglýst eftir húsgögnum og húsbúnaði fyrir þau á samfélagsmiðlum og voru Grundfirðingar ekki lengi að taka við sér en á þremur dögum var búið að fá allt það helsta sem þurfti. Thora vill koma sérstökum þökkum til Grundfirðinga og bæjaryfirvalda fyrir liðlegheitin.\r\n\r\nHjónin Mykola og Olena voru búsett í Kiev en eru nú að koma sér fyrir og reyna að ná áttum í nýju landi. Fjölskyldur þeirra eru enn í Úkraínu og hafa þurft að flýja heimili sín. Hjónin eru í sambandi við ættingja sína daglega.\r\n\r\n<em>Sjá spjall við þau í Skessuhorni vikunnar.</em>",
  "innerBlocks": []
}
Listamenn á flótta hafa nú komið sér fyrir í Grundarfirði - Skessuhorn