{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Ráðist verður í mótvægisaðgerðir til að draga úr áhrifum verðbólgu á lífskjör viðkvæmustu hópa samfélagsins. Tillaga þess efnis var samþykkt á fundi ríkisstjórnarinnar á föstudaginn. Horft verður til sértækra aðgerða með hækkun bóta almannatrygginga, sérstökum barnabótaauka til þeirra sem eiga rétt á tekjutengdum barnabótum og hækkun húsnæðisbóta. Þannig hækka bætur almannatrygginga um 3% frá 1. júní, húsnæðisbætur hækka um 10% frá 1. júní og greiddur verður sérstakur barnabótaauki til þeirra sem fá tekjutengdar barnabætur að fjárhæð 20.000 kr. með hverju barni. Frumvarp þess efnis verður lagt fram síðar í þessum mánuði.\r\n\r\nVerðbólga mældist 7,2% á ársgrundvelli í apríl sl. og hefur Seðlabankinn brugðist við með hækkun vaxta. „Þótt fjárhagsstaða heimila sé almennt sterk og kaupmáttur sé enn að aukast eru heimili í ólíkri stöðu til að takast á við vaxta- og verðlagshækkanir. Þess vegna er sérstaklega horft til fyrrnefndra hópa í mótvægisaðgerðunum eftir ítarlega greiningu fjármála- og efnahagsráðuneytisins,“ segir í tilkynningu frá ríkisstjórninni.\r\n\r\nFram kom í viðtölum við forystufólk ríkisstjórnarinnar um helgina að ekki verður að þessu sinni gripið til sértækra lausna til að mæta vaxandi vanda skuldsettra heimila, t.d. fyrstu kaupenda íbúðarhúsnæðis sem skulda hátt hlutfall kaupverðs eigna sinna.",
"innerBlocks": []
}
Sértækar aðgerðir fyrir viðkvæmustu hópana - Skessuhorn