Undirbúa stofnun hita- og gufuveitu á Grundartanga
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Á fundi bæjarráðs Akraneskaupstaðar 28. apríl síðastliðinn kemur fram að Þróunarfélag Grundartanga undirbúi nú stofnun hita- og gufuveitu á Grundartanga í samstarfi við fyrirtæki á Grundartangasvæðinu og nálæg sveitarfélög. Fyrirhuguð er umsókn um stofnstyrk til Orkusjóðs og óskað eftir vilyrði bæjarráðs um þátttöku í styrkumsókninni. Bæjarráð tók jákvætt í erindið og samþykkti viljayfirlýsingu fyrir hönd Akraneskaupstaðar vegna styrkumsóknar Þróunarfélagsins til Orkusjóðs.\r\n\r\nÁ Grundartanga verður til talsvert magn varma í tengslum við starfsemi iðnfyrirtækjanna þar. Horft hefur verið til þess að nýta þessa orkulind sem í dag fer til spillis. Markmið með orkuendurvinnslu á Grundartanga eru meðal annars eftirfarandi: Draga úr orkusóun (glatvarma, raf- og olíukyndingu á svæðinu), koma upp hitaveitu á Grundartanga og nærumhverfi sem í dag er kalt svæði, draga úr losun á koltvísýringi (CO2), styðja við fjölnýtingu, styðja við klasasamstarf og stunda nýsköpun og tækniþróun.\r\n\r\nEinn af þeim kostum sem er nærtækastur er að nýta umframvarmann sem orkugjafa til hita- og gufuveitu fyrir fyrirtæki á Grundartanga. Til þessa hefur orka til upphitunar húsnæðis og fyrir heitt neysluvatn verið fengin úr 1-3 MW af raforku sem nýta mætti til verðmætari þarfa. Til lengri tíma litið er mun hagkvæmara að kynda hús með hitaveitu sem mun því gera rekstur fyrirtækja á Grundartanga hagkvæmari. Til þessa hefur ekki verið boðið upp á hitaveitu á Grundartanga og því hafa núverandi fyrirtæki sett upp rafmagns hitakerfi.\r\n\r\nJafnframt því að útbúa hitaveitu fyrir Grundartangasvæðið miðar hönnun verkefnisins að því að geta seinna meir einnig veitt hita til nærliggjandi býla sem nú njóta niðurgreiðslu vegna rafhitunar og þannig bætt nýtingu hitaveitunnar og orku á svæðinu. Hitaveita á Grundartanga sem nýtir umframvarma er frábrugðin hefðbundnum hitaveitum á Íslandi að því leyti að þetta er fjarvarmaveita sem er í lokuðu tvöföldu kerfi þannig að vatn til upphitunar er endurnýtt og því eykst notkun ferskvatns ekkert miðað við núverandi notkun.",
"innerBlocks": []
}
Undirbúa stofnun hita- og gufuveitu á Grundartanga - Skessuhorn