Úr umhverfisgöngu bæjarstjóra. Ljósm. úr safni Skessuhorns/sá

Umferðaröryggisáætlun Stykkishólmsbæjar samþykkt

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Í umhverfisgöngum bæjarstjórans Jakobs Björgvins Jakobssonar í Stykkishólmi sem hófust árið 2019 kom fram ákall um bætt umferðaröryggi. Áður hafði verið bent á það á fundum skóla- og fræðslunefndar að rýna þyrfti þetta málefni sérstaklega m.t.t. umferðaröryggis á skólasvæðum. Frá þeim tíma hefur verið unnið markvisst að því að bæta öryggi og samgöngur gangandi vegfarenda í Stykkishólmi, m.a. með bættum göngu- og tengistígum víðsvegar um bæinn. Þetta kemur fram á heimasíðu bæjarins.\r\n\r\nVinnu við umferðaröryggisáætlun Stykkishólmsbæjar er nú lokið en bæjarstjórn samþykkti áætlunina á 410. fundi sínum, 20. apríl sl. Víðtækt samráð við íbúa Stykkishólmsbæjar átti sér stað við gerð áætlunarinnar og var m.a. tekið tillit til ábendinga íbúa úr umhverfisgöngum bæjarstjóra árin 2019 og 2021. Auk þess var stofnaður samráðshópur verkefninu til stuðnings þar sem sátu m.a. fulltrúar frá Samgöngustofu, Vegagerðinni, Strætó bs. og Lögreglunni á Vesturlandi. Þá  var einnig óskað eftir ábendingum vegna vinnu við umferðaröryggisáætlunina sumarið 2021 og íbúar um leið hvattir til að kynna sér vinnuna.\r\n\r\nTilgangur áætlunarinnar er að skapa Stykkishólmsbæ ramma og reglufestu hvað varðar aðgerðir og framkvæmdir tengdar umferð og forgangsraða verkefnum sveitarfélagsins sem miða að auknu öryggi í bænum. Umferðaröryggisáætlun Stykkishólmsbæjar fyrir árin 2021-2025 er hægt að skoða nánar á heimasíðu Stykkishólmsbæjar.",
  "innerBlocks": []
}
Umferðaröryggisáætlun Stykkishólmsbæjar samþykkt - Skessuhorn