Skoða möguleika áframeldis steinbíts í nágrenni Stykkishólms

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Á dögunum ritaði Jakob Björgvin Jakobsson bæjarstjóri Stykkishólmsbæjar undir viljayfirlýsingu fyrir hönd bæjarins um landeldi og sjálfbæra framleiðslu matvæla á grunni grænna iðngarða. Grænir iðngarðar eru þar sem ólík fyrirtæki koma sér fyrir á einu skipulögðu svæði og nýtir orku til framleiðslu verðmæta meðal annars úr ýmsu sem fellur til við matvælaframleiðslu. Undir yfirlýsinguna skrifaði einnig Siggeir Pétursson fyrir hönd Hólmsins ehf. Þetta kemur fram á vefsíðunni stykkisholmur.is.\r\n\r\nMeð viljayfirlýsingunni lýsa Stykkishólmsbær og Hólmurinn ehf. því yfir að vera sammála um að vinna í sameiningu að frumgreiningu möguleika til strandeldis á steinbíti í nágrenni Stykkishólms í samstarfi við Matís ohf. á grunni samkomulags um aukna verðmætasköpun í Stykkishólmi. Að verkefninu standa systkinin og Hólmararnir Lára Hrönn og Siggeir Pétursbörn. Sérstök áhersla verður lögð á greiningu vatns- og orkuþarfar og möguleika á innlendum fóðurgjafa sem fellur til við vinnslu á sjávarafurðum á svæðinu.\r\n\r\nSamkvæmt yfirlýsingunni verður í byrjun lögð áhersla á eftirfarandi atriði: Stykkishólmsbær útvegi Hólminum ehf., eftir nánara samkomulagi, landsvæði án endurgjalds til tímabundinna afnota til uppsetningar á eldiskerum og búnaði  vegna tilraunarinnar sem skal vera auðfjarlægður að tilraun lokinni. Stykkishólmsbær aðstoði jafnframt við undirbúning svæðisins samkvæmt nánara samkomulagi.\r\n\r\nHólmurinn ehf. ber að öðru leyti ábyrgð á verkefninu, þ.e. annast uppsetningu búnaðar, skipuleggur og gerir fyrirhugaðar tilraunir, fylgist með gæðum sjávar í eldi og deilir upplýsingum og greiningum á frekari möguleikum strandeldis á steinbíti á svæðinu með Stykkishólmsbæ. Hólmurinn ehf. skuldbindur sig til að afla allra nauðsynlegra leyfa fyrir undirbúningi, uppbyggingu, framkvæmd og rekstrar fyrirhugaðs landeldis í samræmi við ákvæði laga og reglna sem um starfsemina gilda.\r\n\r\nGefin verður út skýrsla í samvinnu við Matís ohf. að verkefni loknu þar sem fýsileika steinbítsáframeldis er metið út frá fjárhags-, markaðs, umhverfis-, tækni- og lagalegum áskorunum. Áhersla verður lögð á sjálfbæra nýtingu auðlinda og byggja á hugmyndafræði grænna iðngarða um samnýtingu orku- og efnisstrauma.",
  "innerBlocks": []
}