
Hér má sjá tré í skóginum sem er illa farið eftir kanínurnar. Ljósm. rþ
Kanínur á ferli í Álfholtsskógi sem skemma tré
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Kanínur hafa komið af og til í Álfholtsskóg í Skilmannahreppi á síðustu árum væntanlega vegna þess að eigendur þeirra losuðu sig við þær með því að skilja þær eftir í skóginum og síðan vonað hið besta. Þær hafa síðan horfið úr skóginum vegna þess að þær hafa ekki komist af vegna þess að villt dýr, refur eða minkur, hafa orðið þeim að aldurtila. Fyrir tveimur til þremur árum urðu umsjónarmenn Álfholtsskógar varir við nokkrar kanínur sem héldu sig nálægt húsum á svæðinu. Þeim fór að fjölga og sáust kanínuungar á kreiki.\r\n\r\nAð sögn Reynis Þorsteinssonar, eins af umsjónarmönnum skógarins, hafa þeir staðið í ströngu í vetur í Álfholtsskógi. „Í desember tókum við eftir því að eplatré á ákveðnum stað höfðu að því er virtist verið nöguð og sá verulega á þeim. Við gerðum einfaldar ráðstafanir og töldum málið leyst. Það var síðan í febrúar eftir að snjóað hafði verulega og 30 til 40 sentimetra lag af snjó lagðist yfir svæðið að við sáum merki um frekari skemmdir. Alls höfum við nú séð yfir 40 tré sem orðið hafa fyrir alvarlegum skemmdum sem er líklegt að leiði trén til dauða er fram líða stundir. Trén sem kanínurnar sækjast í eru einkum það sem við köllum sparitré í skóginum, eplatré, reynitré, gullregn, blæösp, alaskaepli og eru tré sem hafa verið keypt sérstaklega til að skreyta skóginn. Við höfum ekki tekið eftir neinum skemmdum fyrr en í vetur. Eina lausnin sem við töldum skila árangri var að losna við þær alfarið úr skóginum með aðstoð minkabana. Þessi aðgerð hefur skilað árangri, þannig að 15 liggja í valnum en talið að tvær til þrjár séu enn á kreiki,“ segir Reynir.\r\n\r\nReynir segir að lokum að umsjónarmenn skógarins mælist eindregið til þessi að fólk finni aðrar leiðir til að losa sig við kanínur en að skilja þær eftir í skóginum. Þær eiga alls ekki heima þar og verður lógað ef til þeirra sést. Þeir gestir sem sjá kanínur í skóginum eru beðnir um að láta Reyni vita í síma 899-7454.",
"innerBlocks": []
}