Vinnuaðstaða sem Regus býður nú til leigu í Borgarnesi.

Aðstaða fyrir fjarvinnu opnuð í Borgarnesi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Regus hefur opnað nýja fjarvinnuaðstöðu á hótelinu B59 í Borgarnesi. Þar eru 18 fjarvinnslustöðvar tilbúnar sem fólk getur leigt og sinnt starfi sínu í notalegu umhverfi. „Um mikið byggðamál er að ræða enda styður opnun slíkrar stöðvar við hugmyndafræðina um störf án staðsetningar. Regus hyggst opna sambærilega vinnuaðstöðu um land allt, sú næsta verður opnuð um miðjan maí í gamla Landsbankahúsinu á Ísafirði,“ segir Stefán Óli Jónsson ráðgjafi hjá Regus í tilkynningu.\r\n\r\n„Það sem gerir útibúið í Borgarnesi einstakt er að gestir þess fá jafnframt aðgang að líkams- og heilsuræktinni í B59,“ segir Stefán Óli. Þá segir hann að ný mathöll með fjölda veitingastaða verði innan tíðar opnuð í sama húsi, þ.e. í matsal B59, þannig að stutt verður fyrir þjónustukaupendur skrifstofurýmis að nálgast mat. „Loks er góð fundaaðstaða í útibúinu, sem getur hýst allt að 100 manna fundi,“ segir Stefán Óli.\r\n\r\nErna Karla Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar Regus á Íslandi, hefur haft veg og vanda af opnuninni í Borgarnesi. „Það er frábært að geta boðið fólki sem býr í nágrenninu upp á aðstöðu sem eykur bæði lífsgæði fólks og sparar því tíma, ekki síst í akstur á milli staða sem jafnframt er umhverfisvænt. Opnun Regus í Borgarnesi er liður í því að fólk geti starfað þar sem það vill búa og í heimabyggð. Stefna okkar er að opna á enn fleiri stöðum á næstu mánuðum svo að fólk um allt land þurfi ekki að leita langt yfir skammt að góðri vinnuaðstöðu,“ segir Erna.\r\n\r\n[gallery columns=\"2\" size=\"large\" ids=\"53201,53202\"]",
  "innerBlocks": []
}
Aðstaða fyrir fjarvinnu opnuð í Borgarnesi - Skessuhorn