
Reykholt. Ljósm. mm
Minningartónleikar í Reykholti næstkomandi sunnudag
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Sunnudaginn 1. maí klukkan 16 verða tónleikar í Reykholtskirkju í Borgarfirði. Þar mun Stuðmaðurinn Jakob Frímann Magnússon koma fram ásamt völdum gestum og flytja sín þekktustu lög en einnig segja frá tilurð þeirra. Auk þess munu félagar í leikdeild Skallagríms flytja lag úr sýningunni Slá í gegn sem sýnd var í Lyngbrekku í vetur. Það gera þeir til að heiðra minningu Árna Guðjónssonar sem féll frá í vor, en Árni var einn þeirra sem kom að uppfærslu sýningarinnar.\r\n\r\nAllur ágóði af miðasölu á tónleikana rennur annars vegar til Minningarsjóðs Heimis Klemenzsonar og hins vegar til barna Árna Guðjónssonar.\r\n\r\nStjórn Minningarsjóðs Heimis hvetur íbúa í héraðinu og sem flesta til að mæta í Reykholtskirkju, eiga notalega stund í minningu tveggja góðra borgfirskra drengja. Miðaverð er 4.000 krónur.",
"innerBlocks": []
}