Gönguhópurinn við Höfða.

Göngur fyrir 60 ára og eldri á Akranesi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Anna Bjarnadóttir íþróttafræðingur hefur undanfarin ár unnið að bættri lýðheilsu á Akranesi fyrir Akraneskaupstað. Til dæmis hefur hún staðið fyrir göngum tvisvar í viku fyrir 60 ára og eldri sem tekið hefur verið eftir þar í bæ. Hópurinn fer frá N1 klukkan 9 árdegis á mánudögum og á miðvikudögum klukkan 10. Anna hefur ástríðu fyrir hreyfingu og stundar reglulega göngu hér og þar um náttúru Íslands. Reynir oftast að fara um á hjóli eða gangandi á milli staða á Akranesi.\r\n\r\nAnna er Vestfirðingur, frá Suðureyri við Súgandafjörð. Þar ólst hún upp við að stunda íþróttir og hreyfingu og hefur sá áhugi fylgt henni allar götur síðan. Auk þess að starfa sem íþróttakennari við FVA hefur hún verið í starfi hjá Akraneskaupstað með hreyfingu fyrir 67+. Í vetur hefur hún komið inn í félagsstarf bæjarins og verið með æfingar þar auk þess að sjá um leikfimi hjá Félagi eldri borgara á Akranesi og göngurnar fyrir 60 ára og eldri.\r\n\r\n„Gönguferðirnar eru á mánudögum og miðvikudögum. Á mánudögum er gengið rösklega og rólegri göngur á miðvikudögum. Yfirleitt erum við í kringum 15 sem mætum í göngurnar en oft fleiri. Göngurnar eru yfirleitt í kringum 70-80 mínútur á mánudögum en um klukkutíma á miðvikudögum. Oft gerum við æfingar í gönguferðunum. Til að brjóta upp hversdagsleikann endum við stundum á því að koma við í Kallabakaríi að göngu lokinni. Upphaflega var það þannig að það var leikfimi yfir vetrarmánuðina en svo ákvað ég að prófa eitt vorið að bjóða upp á göngur eftir að leikfimin hætti. Það tókst svona vel að við höfum haldið því áfram síðan 2018 að mig minnir,“ segir Anna.\r\n\r\n„Ég byrjaði þannig að ég bauð upp á áskorunargöngur. Þá tókum við þrjár göngur í viku sem byrjuðu klukkan 8 á morgnana og gengum 10-15 km í hverri göngu. Það var virkilega vel mætt í þessar göngur. Í ágúst 2020 gengum við í kringum Akrafjall sem var mjög skemmtilegt. Við ákváðum að láta Covid ekki stoppa okkur og héldum áfram að ganga þrátt fyrir ástandið og auðvitað var það upp og niður hvernig mætingin var þegar faraldurinn stóð sem hæst, en við gengum okkur í gegnum hann ef svo má segja, og erum enn að,“ segir Anna að endingu.",
  "innerBlocks": []
}
Göngur fyrir 60 ára og eldri á Akranesi - Skessuhorn