Þórður Þ Þórðarson tók við samfélagsviðurkenningu ÍA fyrir hönd ÞÞÞ. Ljósmyndir: ÍA.

Fréttir frá ársþingi Íþróttabandalags Akraness

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Ársþing Íþróttabandalags Akraness var haldið síðastliðinn mánudag í Tónbergi. Að sögn Guðmundu Ólafsdóttur framkvæmdastjóra ÍA var dagskrá þingsins með hefðbundnu sniði og samkvæmt lögum. Marella Steinsdóttir formaður setti þingið og fór yfir ársskýrslu Íþróttabandalagsins. Erla Ösp Lárusdóttir gjaldkeri fór yfir reikninga þess, en bandalagið skilaði rúmlega fimm milljóna króna hagnaði sem skýrist mest af skertri starfsemi síðasta árs og að ekki reyndist unnt að halda þá fyrirlestra og þá fræðslu sem áætluð hafði verið.\r\n\r\n<strong>ÞÞÞ hlaut fyrstu samfélagsviðurkenninguna</strong>\r\n\r\nGestir ávörpuðu þingið. Andri Stefánsson framkvæmdastjóri ÍSÍ flutti kveðjur frá ÍSÍ, Bára Daðadóttir formaður skóla- og frístundaráðs Akraneskaupstaðar og Guðmunda Ólafsdóttir flutti kveðjur frá UMFÍ. Ellefu manns fengu afhent bandalagsmerki. Í fyrsta skipti voru afhent samfélagsviðurkenning, er það viðurkenning og þakkir til fyrirtækis sem styður vel við bakið á íþróttafélögum og Íþróttabandalaginu. Fyrsta fyrirtækið sem tók við þessari þakkarviðurkenningu var ÞÞÞ sem hefur í áraraðir stutt vel og dyggilega við bakið á íþróttalífi á Akranesi og eins við Íþróttabandalagið sjálft. Stjórn ÍA tók ákvörðun um að hafa þetta árlegt og að eitt fyrirtæki á ári væri verðlaunað.\r\n\r\n<strong>Nýr formaður</strong>\r\n\r\nStjórn ÍA tók breytingum á ársþinginu þar sem Marella Steinsdóttir gaf ekki kost á sér til áframhaldandi formannssetu. Marellu var þakkað allt samstarf sem formaður. Hún gaf kost á sér í setu varastjórnar ÍA og var kjörin í hana. Hrönn Ríkharðsdóttir, sitjandi varaformaður, bauð sig fram og var hún kjörin formaður með lófaklappi. Emelía Halldórsdóttir var kjörin varaformaður, einnig með lófaklappi, en aðrir í stjórn voru kjörin: Erla Ösp Lárusdóttir, Heiðar Mar Björnsson og Gyða Björk Bergþórsdóttir. Gísli Karlsson og Líf Lárusdóttir gáfu ekki kost á sér til áframhaldandi starfa og var þeim þakkað fyrir störf í þágu ÍA. Varastjórn skipa: Trausti Gylfason og Marella Steinsdóttir. Undir liðnum önnur mál tók Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri til máls.\r\n\r\n<strong>Ellefu fengu bandalagsmerki</strong>\r\n\r\nBandalagsmerki ÍA fengu: Drífa Harðardóttir, Garðar Jónsson, Hörður Harðarson, Guðmundur Egill Ragnarsson, Inga Ósk Jónsdóttir, Ingibjörg Stefánsdóttir, Kristvin Bjarnason, Olga Magnúsdóttir, Ólöf Húnfjörð Samúelsdóttir, Samúel Guðmundsson ogViktor Elvar Viktorsson.\r\n\r\n[gallery columns=\"2\" size=\"large\" ids=\"52985,52986\"]",
  "innerBlocks": []
}
Fréttir frá ársþingi Íþróttabandalags Akraness - Skessuhorn