Hafnarhúsið í Ólafsvík. Ljósm. af.

Endurbætur framundan á hafnarhúsinu í Ólafsvík

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Hafnarsjóður Snæfellsbæjar áformar miklar endurbætur á hafnarhúsinu í Ólafsvík á þessu ári. Björn Arnaldsson hafnarstjóri segir í samtali við Skessuhorn að það eigi að byggja við húsið 30 fermetra þar sem verður kaffistofa starfsmanna, aðstaða og snyrting ásamt sturtu fyrir smábátasjómenn. Einnig á að klæða húsið, skipta um glugga og þak. Kostnaðar við verkið er áætlaður 45 miljónir króna. Björn segir ennfremur að það eigi að lagfæra húsið að innan og taka það allt í gegn. Húsið er byggt árið 1974 og fyrir löngu kominn tími til að laga það, bæði að utan sem innan.",
  "innerBlocks": []
}
Endurbætur framundan á hafnarhúsinu í Ólafsvík - Skessuhorn