Atvinnumálaþing Borgarbyggðar verður á þriðjudaginn
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Borgarbyggð stendur fyrir atvinnumálaþingi í Hjálmakletti í Borgarnesi þriðjudaginn 26. apríl frá kl. 16:00 - 18:30. Á fyrri hluta þingsins verður einblínt á atvinnumál í Borgarbyggð og kynnt framtíðarsýn sveitarfélagsins í skipulagsmálum. Auk þess verður veitt innsýn í þá grósku sem á sér stað í nýsköpun á svæðinu. Eftir kaffihlé verður framtíðin í brennidepli, farið verður yfir atvinnutækifæri á landsbyggðinni auk þeirra tækifæra sem eru í sjónmáli og hvernig hægt er að nýta þau betur.\r\n\r\nAðilar atvinnulífsins fá tækifæri til að fræðast um stöðu mála og horfur framtíðar. Einnig er um að ræða vettvang til að efla tengslanet og auka samstarf atvinnulífs, sveitarfélagsins og annarra stofnana. Atvinnurekendur, frumkvöðlar og áhugasamir einstaklingar um atvinnuþróun og nýsköpun í Borgarbyggð eru hjartanlega velkomnir, segir í tilkynningu frá Borgarbyggð.\r\n\r\n<strong>Dagskráin er svohljóðandi:</strong>\r\n\r\n<em>Þingið sett.</em> Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir, formaður byggðarráðs setur þingið og sér um fundarstjórn.\r\n\r\n<em>Hvað bíður þín í Borgarbyggð?</em> Þórdís Sif Sigurðardóttir sveitarstjóri Borgarbyggðar.\r\n\r\n<em>Sviðsmyndir og áhrifaþættir í þróun atvinnulífs á Vesturlandi.</em> Páll Brynjar Sævarsson, framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi.\r\n\r\n<em>Matvælaland Ísland – Tækifæri í nýsköpunar- og frumkvöðlastarfsemi.</em> Dr. Ragnheiður Inga Þórarinsdóttir rektor Landbúnaðarháskóla Íslands segir frá nýsköpunar- og þróunarsetri háskólanna á Vesturlandi.\r\n\r\n<strong>Kaffihlé</strong>\r\n\r\n<em>Tækifæri í framtíð. </em>Steinþór Pálsson, ráðgjafi hjá KPMG.\r\n\r\n<em>Menntun fyrir framtíðina - nýjar áherslur í takt við tímann. </em>Bragi Þór Svavarsson skólameistari Menntaskóla Borgarfjarðar.\r\n\r\n<em>Störf framtíðarinnar. </em>Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.\r\n\r\n<strong>Pallborð</strong>\r\n\r\nBárður Örn Gunnarsson, ráðgjafi hjá Svartatindi ehf., stýrir umræðunni og þátttakendur eru meðal annars úr hópi frummælenda auk einstaklinga úr ólíkum áttum atvinnulífsins í Borgarbyggð.",
"innerBlocks": []
}
Atvinnumálaþing Borgarbyggðar verður á þriðjudaginn - Skessuhorn