
Rósa Kristín og Aron Logi ásamt öðrum þjálfara sínum Adam Reeve. Ljósm. aðsend.
Urðu Evrópumeistarar í samkvæmisdönsum í sínum aldursflokkum
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Skagakonan Rósa Kristín Hafsteinsdóttir ásamt dansfélaga sínum Aroni Loga Hrannarssyni náðu frábærum árangri á Evrópumeistaramótinu í samkvæmisdönsum sem fram fór í Blackpool á Englandi um páskana. Þau kepptu í flokki 19 ára og yngri á föstudaginn langa. Þar tryggðu þau sér gullið og Evrópumeistaratitil. Daginn eftir kepptu þau í U-21 árs flokknum. Þar tryggðu þau sér einnig gullmeistaratitilinn og annan Evrópumeistartitil og eru því tvöfaldir Evrópumeistarar. Ekki amalegur árangur það.\r\n\r\n„Þetta er klárlega einn okkar besti árangur hingað til. Þetta er eitthvað sem við höfum stefnt að. Þetta var frábær tilfinning að ná að sigri í okkar aldursflokkum og gefur okkur mikið,“ sagði Rósa Kristín í stuttu spjalli við Skessuhorn að móti loknu. „Við erum þegar farin að undirbúa okkur fyrir næstu keppni sem verður í maí og fer hún einnig fram í Blackpool. Það er opið mót þar sem allir bestu dansararnir í heiminum koma saman og er svona eiginlegt heimsmeistaramót í samkvæmisdönsum. Okkur hlakkar mikið til taka þátt í þeirri keppni.“ Rósa segir jafnframt að þau æfi alla daga vikunnar í íþróttahúsinu á Digranesi undir leiðsögn hjónanna Karenar og Adams Reeve, sem hafa verið þjálfarar þeirra undanfarin ár.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_52770\" align=\"alignnone\" width=\"600\"]<img class=\"wp-image-52770 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/04/Urdu-Evropumeistarar-i-samkvaemisdonsum-i-sinum-aldursflokkum_2-600x450.jpg\" alt=\"\" width=\"600\" height=\"450\" /> Rósa Kristín og Aron Logi á verðlaunapalli sem Evrópumeistarar.[/caption]",
"innerBlocks": []
}