
„Fyrir þá sem vilja eiga heimili í sveit. Eignarlóðir á einum fallegasta stað landsins, við fossinn Glanna í Norðurá, rétt hjá Bifröst. Golfvöllurinn Glanni í göngufæri. Öll veitukerfi tilbúin í jörðu (m.a. ljósleiðari),“ segir í sölulýsingu fasteignasalans.
Íbúðalóðir við Norðurá til sölu
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Íbúðalóðir við Norðurá í Norðurárdal í Borgarfirði hafa verið auglýstar til sölu, en svæðið er skilgreint sem sumarhúsaland í aðalskipulagi Borgarbyggðar. Var sótt um breytingu á aðalskipulagi vegna þessa og samþykkti skipulags- og byggingarnefnd sveitarfélagsins í aprílbyrjun að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja erindið. Var það gert á fundi hennar 13. apríl síðastliðinn. Viðkomandi svæði er í Víðinesi í landi Hreðavatns, neðan við þjóðveg. Það er um tíu hektarar að stærð og til sölu eru 15 lóðir og eitt fullbúið hús, Víðines 20. Söluaðili eignanna er Skipasalan og verð lóðanna er á bilinu 14 til 16 milljónir króna. Umsótt breyting á aðalskipulagi hljóðar upp á að breyta landnotkun úr frístundabyggð í íbúðabyggð. Þegar hefur verið lagður vegur að svæðinu frá þjóðvegi nr. 1 með bundnu slitlagi og vegakerfi innan svæðisins. Einnig hafa allar veitur verið lagðar, svo og ljósleiðari. Nokkur hús eru þegar risin á svæðinu.\r\n\r\nUm er að ræða kjarrivaxið land í Grábrókarhrauni og eðli málsins samkvæmt er svæðið viðkvæmt. Í sölulýsingu er tekið fram að ekki megi raska landi á neinn hátt umfram það sem nauðsynlegt er vegna byggingaframkvæmda. Ekki má t.d. afmarka lóðir með runnum eða girða þær og ekki planta öðrum trjágróðri en er fyrir í náttúru svæðisins, svo sem birki og reyni. Byggingarskilmálar fela í sér allt að 140 fermetra hús á einni hæð og þau þarf að byggja eftir reglum um byggingu íbúðarhúsa í þéttbýli.",
"innerBlocks": []
}