Gamli skóli. Ljósm. gj.

Endurbætur fyrirhugaðar á gömlum byggingum á Hvanneyri

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Gömlu húsin á Hvanneyri í Borgarfirði eru mikil staðarprýði og nær saga þeirra aftur til ársins 1896. Á næstunni standa til lagfæringar á tveimur þessara bygginga, húsa sem byggð voru snemma á síðustu öld.\r\n\r\n<strong>Gamli skóli</strong>\r\n\r\nNeðst á Hvanneyrartorfunni, fyrir ofan engjarnar á staðnum stendur reisuleg bygging sem kölluð er Gamli skóli. Húsið var byggt árið 1910 eftir teikningum Rögnvaldar Ólafssonar og hefur gegnt ýmsum hlutverkum gegnum tíðina. Þar hafa verið kennslustofur, gistiaðstaða og fyrrum heimavist, vinnuaðstaða kennara og fleira. Nokkrar breytingar og lagfæringar eru fyrirhugaðar á húsinu á næstunni til að uppfylla kröfur nútímans um brunavarnir. Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir hafa sent inn erindi þessa efnis til umhverfis- og skipulagsnefndar Borgarbyggðar. Þar er kveðið á um breytingar innanstokks í þessu aldraða húsi samkvæmt hönnun Basalt arkitekta og var erindið samþykkt. Að sögn Sverris Jóhannessonar þjónustustjóra hjá Framkvæmdasýslunni – Ríkiseignum hefur Minjastofnun einnig veitt styrk til að endurbóta og viðhalds upprunalegra einkenna hússins svo sem að lagfæra og mála glugga. Megin markmið fyrirhugaðra breytinga er auknar brunavarnir, en gistingu í húsinu var lokað í fyrra vegna skorts á þeim. Meðal þess sem gert verður er að byggja upp stiga í suðurenda hússins og bæta þannig við flóttaleið. Verður stiginn gerður í anda hússins. Ennfremur verður gistirýmum fækkað, herbergjum breytt úr tveggja manna í eins manns og hreinlætiskjarnar endurnýjaðir. Breytingar og lagfæringar á húsinu verða unnar í áföngum á næstu árum í samráði við Landbúnaðarháskóla Íslands og Minjastofnun.\r\n\r\n<strong>Skólastjórahúsið</strong>\r\n\r\nÞetta verða ekki einu framkvæmdir við gömul hús á Hvanneyri á næstunni. Nokkrar endurbætur verða einnig gerðar á Skólastjórahúsinu sem stendur nálægt kirkjunni á staðnum. Það var byggt árið 1920 og hannað af Guðjóni Samúelssyni. Farið verður strax í vor í fyrsta áfanga á því verkefni að skipta um glugga í húsinu og verður byrjað á suður- og austurhliðum þess. Við þetta mun útlit byggingarinnar breytast nokkuð því nýju gluggarnir eru smíðaðir samkvæmt upprunalegum teikningum Guðjóns og hafði það útlit breyst við síðari lagfæringar. Við endurbæturnar mun þessi fallega bygging því öðlast þá mynd sem hönnuður þess hafði upprunalega í huga.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_52739\" align=\"alignnone\" width=\"600\"]<img class=\"wp-image-52739 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/04/Hvanneyri-endurbaetur_2-600x400.jpg\" alt=\"\" width=\"600\" height=\"400\" /> Skólastjórahúsið en framan við það er garður sem stundum er nefndur Frúargarðurinn. Ljósm. úr safni.[/caption]",
  "innerBlocks": []
}
Endurbætur fyrirhugaðar á gömlum byggingum á Hvanneyri - Skessuhorn