Dýrmætum áburði skipað á land

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Það var hamagangur í öskjunni þegar áburði var skipað á land á stóru bryggjunni á Akranesi í morgun. Skipið heitir Wilson Newport og flutti stórsekki af áburði sem fara nú til dreifingar í sveitum á Vesturlandi. Það eru starfsmenn ÞÞÞ sem sjá um uppskipunina. Eins og fram hefur komið hefur áburðarverð hækkað mikið frá síðasta ári, er nú tvöfalt dýrara. Engu að síður þurfa bændur sinn áburð þótt vafalítið hafi einkar vel verið vandað til áburðarpantana að þessu sinni.",
  "innerBlocks": []
}
Dýrmætum áburði skipað á land - Skessuhorn