{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Sumardagurinn fyrsti er í dag, sannkallaður gleðidagur í lífi þjóðar sem býr á norðlægum slóðum. Skessuhorn gaf í gær út þematengt sumarblað þar sem ýmislegt var í boði sem tengist árstímanum sérstaklega. Forsíðu blaðsins prýðir mynd Gunnhildar Lind ljósmyndara af skólafélögunum Gunnlaugi Gylfa Kristjánssyni, Emil Breka Hilmarssyni og Jóni Svavari Þórðarsyni sem eru í Lýsuhólsskóla á Snæfellsnesi. Þeir gerðu sér glaðan dag í páskafríinu þegar þeir fóru í sundlaugina í Borgarnesi til að renna sér í rennibrautunum. Fátt meira hressandi til að koma manni í sannkallað sumarskap.",
"innerBlocks": []
}