
Þórarinn Jónsson ljósmyndari frá Akranesi. Ljósm. glh.
Fer með ljósmyndara um landið í ljósmyndaferðir
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Þórarinn Jónsson frá Akranesi hefur rekið ferðaþjónustufyrirtæki sitt Thor Photography frá árinu 2014. Hann er með dyggan hóp fylgjenda á samfélagsmiðlum, eða yfir 30.000 samtals, og eins og nafnið gefur til kynna þá sérhæfir hann sig í sérstökum ljósmyndaferðum eða workshops eins og slíkar ferðir eru gjarnan kallaðar á ensku. „Ljósmyndunin var alltaf áhugamál sem svo þróaðist yfir í það að ég fór að guidea,“ segir Þórarinn sem þekkir Ísland eins og handarbakið á sér og fer með erlenda áhugaljósmyndara í ljósmyndaferðir um landið allan ársins hring. „Ég er menntaður smiður en hef alltaf haft áhuga á ljósmyndun, alveg frá því ég var í grunnskóla í myrkrakompunni að framkalla filmur. Ég er líka meðlimur í ljósmyndaklúbbnum Vitanum á Akranesi og hef verið þar næstum frá upphafi klúbbsins eða frá árinu 2012. Mig langaði að prófa eitthvað nýtt, stofnaði fyrirtæki og fór að guidea aðra ljósmyndara um Ísland. Sem betur fer átti ég skilningsríka atvinnuveitendur hjá Akri sem leyfðu mér að hoppa svona til og frá. Svo vatt þetta upp á sig og ég fór allur inn í reksturinn árið 2014 þegar ég stofnaði fyrirtækið og hef verið í þessu síðan. Sennilega hef ég komið inn á réttum tíma,“ bætir Þórarinn við léttur í lund.\r\n\r\n<em>Sjá ítarlegt spjall við Þórarinn Jónsson í Sumarblaði Skessuhorns sem kom út í dag.</em>\r\n\r\nNokkrar myndir úr safni Tóta:\r\n\r\n[gallery size=\"medium\" ids=\"52727,52728,52729\"]",
"innerBlocks": []
}