
Frá útfalli Þórisvatns. Ljósm. Mats Wibe Lund.
Fallið frá skerðingum á stórnotendur og fjarvarmaveitur
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Landsvirkjun hefur fallið frá skerðingum á afhendingu raforku til stórnotenda og fjarvarmaveitna, í ljósi batnandi vatnsbúskapar síðustu daga. Fyrir helgi var fallið frá áformum um endurkaup raforku. Eftir stendur þó, að skerðingar til fiskimjölsverksmiðja munu vera óbreyttar enn um sinn.\r\n\r\nEins og ítrekað hefur komið fram hefur staðan í vatnsbúskap Landsvirkjunar verið með erfiðasta móti í vetur. Þurrkar síðasta haust og sumar gerðu það að verkum að Þórisvatn fylltist ekki, en það er mikilvægasta miðlunarlónið á stærsta vinnslusvæði fyrirtækisins. Í desember var tilkynnt um skerðingu á afhendingu raforku til fiskimjölsverksmiðja og í janúar var tilkynnt um skerðingar til stórnotenda og fjarvarmaveitna.\r\n\r\n„Á skömmum tíma hefur staðan batnað svo um munar. 10. mars sl. var reiknað með að skerðingar stæðu út aprílmánuð, en úrkoma og hlýnandi veður síðari hluta mars kollvarpaði þeim illspám. Sú breytta staða leiddi til þess að hægt var að tilkynna að ekki kæmi til endurkaupa á raforku, sem er síðasta og dýrasta úrræði okkar til að verjast lágri stöðu miðlunarforðans. Nú er svo komið að hægt er að vinda ofan af skerðingum,“ segir í tilkynningu.",
"innerBlocks": []
}