Tónleikar með Bubba Morthens í hádeginu í dag við Akranesvita
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Því var fagnað í síðustu viku að tíu ár eru liðin frá opnun Akranesvita fyrir almenning. Tekin var ákvörðun um að halda tónleika í hádeginu alla föstudaga í sumar við vitann á Breið og er ætlunin að hefja leik föstudaginn 3. júní. Þar munu koma fram ýmsir tónlistarmenn, hljómsveitir og plötusnúðar til að trylla lýðinn og halda uppi góðri stemningu í allt sumar. Breiðin er tilvalinn tónleikastaður því það er langt frá íbúðabyggð og því lítið ónæði sem skapast af þannig samkomum.\r\n\r\nÍ hádeginu í dag verður hægt að fá forsmekkinn af þessu þegar enginn annar en Bubbi Morthens mun stíga á svið á bílastæðinu við vitann. Hann flytur nokkur af sínum vinsælustu lögum og einnig nokkur lög af óútkominni plötu sinni sem er væntanleg í haust og nefnist Að vita eða ekki vita. Að sögn Hilmars Sigvaldasonar vitavarðar á Breiðinni kom þetta óvænt upp en ákveðið var að kýla á þetta þegar Bubbi hafði samband og óskaði eftir að fá að kíkja við og kynna nýju plötuna. Skagamaðurinn Ísólfur Haraldsson sem er umboðsmaður Bubba segir að þó fyrirvarinn sé skammur megi búast við Bubba í góðum fíling enda kappinn orðinn langþreyttur á tónleikaleysi vegna samkomutakmarkana.\r\n\r\nTónleikarnir hefjast stundvíslega á hádegi og standa yfir í rúmlega klukkutíma. Frítt er á viðburðinn. Því er upplagt fyrir Skagamenn og nærsveitunga að taka hádegisnestið með sér á Breiðina í dag og upplifa stemninguna með Bubba í sínu besta formi.",
"innerBlocks": []
}