Mynd tekin yfir Borgarnesi, fjær er Borgarfjörðurinn og uppsveitirnar, þar á meðal Skorradalur.

Slíta samstarfi við Skorradalshrepp náist ekki samningar

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Undanfarin ár og áratugi hefur verið samningur milli Skorradalshrepps og Borgarbyggðar um kaup á ýmissi þjónustu fyrir íbúa Skorradalshrepps. Um er að ræða þjónustu leikskóla, grunnskóla, slökkviliðsmál, safnamál og félagsþjónustu. Síðasti samningur um þjónustuna rann út í upphafi árs 2021 en ekki hefur náðst samkomulag um endurnýjun hans þrátt fyrir viðræður um slíkt, en samninga umleitanir hófust samkvæmt heimildum Skessuhorns árið 2019. Skorradalshreppur hefur farið fram á að stofnuð verði sex manna samninganefnd, skipuð þremur fulltrúum úr hvoru sveitarfélagi, til að freista þess að ná samningi um verð fyrir þjónustuna. Borgarbyggð hafnar hins vegar aðkomu að slíkri nefnd, enda lítur sveitarfélagið svo á að seld þjónusta skuli endurspegla þann kostnað sem felst í henni hverju sinni. Að öðrum kosti verði hún ekki veitt.\r\n\r\nMálið var tekið fyrir á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar í gær og í bókun frá fundinum má merkja að talsverðrar óþolinmæði gæti gagnvart nágrönnunum í Skorradal, nú sé komið að vendipunkti í málinu: „Byggðarráð leggur áherslu á að forsendur samninga við önnur sveitarfélög um þjónustu verði að lágmarki að endurspegla raunkostnað við veitingu þjónustunnar. Verði ekki kominn á samningur fyrir 1. maí nk. mun Borgarbyggð ekki veita íbúum Skorradalshrepps neina þjónustu frá og með 1. júní 2022,“ segir í bókun af fundinum. Þórdís Sif Sigurðardóttir sveitarstjóri Borgarbyggðar staðfestir að næsti fundur málsaðila hafi verið boðaður 11. apríl næstkomandi.",
  "innerBlocks": []
}
Slíta samstarfi við Skorradalshrepp náist ekki samningar - Skessuhorn