
Frístundamiðstöðin á Garðavöllum. Ljósm. vaks
Samið við nýjan veitingaaðila á Garðavöllum
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Golfklúbburinn Leynir á Akranesi segir í tilkynningu að samið hafi verið við Hlyn Guðmundsson um að taka að sér rekstur veitinga í Frístundamiðstöðinni á Garðavöllum. Leynir auglýsti í mars eftir nýjum rekstraraðila og bárust klúbbnum níu umsóknir. Veitingastaðurinn Galito var fyrrum rekstraraðili en hann hafði séð um veitingareksturinn frá því húsið var tekið í notkun árið 2019.\r\n\r\nÞá segir í tilkynningunni að matreiðslumaðurinn Hlynur Guðmundsson hafi mikla reynslu í faginu og ætli að flytja fyrirtækið sitt, Hlynur Kokkur Veisluþjónusta, frá Hafnarfirði upp á Akranes. Þá segir einnig að Golfklúbburinn Leynir og Hlynur ætli að undirbúa sumarið vel og leggja metnað í að efla þjónustu við kylfinga sem og aðra gesti sem sækja Garðavelli. Á næstu vikum er stefnt á að ljúka við endurbætur á salnum og gera hann tilbúinn fyrir vorið.",
"innerBlocks": []
}