Ljósm. arg

Bingó í Heiðarskóla til styrktar hjálparstarfi í Úkraínu

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Umhverfisnefnd Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit hefur árlega reynt að láta gott af sér leiða með einhverjum hætti og gjarnan tekið þátt í verkefninu jól í skókassa. Nefndin ákvað að gera það ekki á þessu skólaári og finna umhverfisvænni leið til að gera góðverk. Var því ákveðið að safna fjármunum og styrkja gott málefni. Ætlar nefndin að halda bingó, fatamarkað og vöfflukaffi í Heiðarskóla á fimmtudaginn og að þessu sinni mun allur ágóði renna til hjálparstarfs í Úkraínu.\r\n\r\nBoðið verður upp á skemmtilegt bingó með glæsilegum vinningum og þau sem vilja geta komið með föt á slá til að selja til að styrkja málefnið. Þá verður hægt að setjast niður yfir kaffi og vöfflu og spjalla við fólk eftir of langt hlé frá samkomum. Bingóspjaldið verður selt á 500 krónur og vaffla og kaffi á 1000 krónur. Enginn posi er á staðnum svo það þarf að koma með pening.\r\n\r\nViðburðurinn verður í Heiðarskóla og hefst kl. 18:00 og eru allir velkomnir.",
  "innerBlocks": []
}
Bingó í Heiðarskóla til styrktar hjálparstarfi í Úkraínu - Skessuhorn