{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Skipverjar á dragnótarbátnum Patreki BA frá Patreksfirði voru heldur kuldalegir að sjá þegar þeir komu til hafnar í Ólafsvík í gærkvöldi, enda hafði verið norðaustan kaldaskítur og kalt í veðri. „Við tókum aðeins eitt hal,“ sögðu skipsverjar í stuttu bryggjuspjalli. „Það var norðaustan stormur við Öndverðarnesið og ekki hægt að athafna sig með góðu móti,“ sögðu þeir og bættu við að um þrjú tonn af slægðri ýsu og þorski hafi komið úr þessu eina hali.\r\n\r\nNú spáir vel næstu daga og því ættu bátar að komast á sjó.",
"innerBlocks": []
}