
Reykholtskirkja í Borgarfirði. Ljósm úr safni.
Reykholtshátið hlýtur tilnefningu
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Reykholtshátíð í Borgarfirði hefur verið tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2022 í flokki tónlistarhátíða. Hátíðin er þar í flokki með landskunnum listamönnum og menningarstofnunum eins og Björk Guðmundsdóttur og Sinfóníuhljómsveit Íslands. Listrænir framkvæmdastjórar árið 2021 voru Sigurður Bjarki Gunnarsson sellóleikari og Þórunn Ósk Marinósdóttir víóluleikari hjá Sinfoníuhljómsveit Íslands. Frá þessu segir á vef Borgarbyggðar.\r\n\r\nReykholtshátíðin hefur nú í tvígang fengið samstarfssamning við Borgarbyggð, fyrst árið 2021 og fyrir árið 2022. Í frétt Borgarbyggðar segir að mikilvægt sé að styðja við viðburði sem hafa skapað sér sess í Borgarbyggð og er meginmarkmið samningsins að tryggja rekstur og menningararfleið viðburða í sveitarfélaginu.\r\n\r\nÍslensku tónlistarverðlaunin verða veitt í Hörpu miðvikudaginn 30. mars næstkomandi og verða í beinni útsendingu á RÚV.",
"innerBlocks": []
}