Þorkell Símonarson, Keli Vert í Langaholti, ræðir við gesti á síðasta Mannamóti sem var haldið. Ljósm. úr safni.

Mannamót Markaðsstofa landshlutanna verður á fimmtudaginn

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Ferðakaupstefnan Mannamót Markaðsstofa landshlutanna verður haldin að nýju fimmtudaginn 24. mars í Kórnum í Kópavogi og stendur frá kl. 12 til 17. Viðburðurinn er sá fjölmennasti í íslenskri ferðaþjónustu og hefur skipað sér sess sem einn sá allra mikilvægasti fyrir greinina. Þar gefst samstarfsfyrirtækjum markaðsstofanna í öllum landshlutum tækifæri til að kynna sig fyrir fólki í ferðaþjónustu sem starfar á höfuðborgarsvæðinu og koma á nýjum viðskiptasamböndum og styrkja þau sem fyrir eru.\r\n\r\n„Ekki er vanþörf á því í kjölfar heimsfaraldurs Covid-19 en vegna hans þurfti að aflýsa viðburðinum árið 2021. Alla jafna fer hann fram í janúar en var frestað fram í mars, einmitt vegna faraldursins. Nú þegar ferðaþjónustan er aftur að komast á skrið er tilhlökkunin eftir því að hittast í Kórnum í Kópavogi orðin mikil,“ segir í tilkynningu vegna Mannamóts.\r\n\r\nÁ viðburðinum verða um 250 fyrirtæki með bása, þar af 26 af Vesturlandi. Gert er ráð fyrir allt að 800 gestum. Enginn aðgangseyrir er fyrir gesti sem mæta á viðburðinn, en þeim er þó bent á að skrá sig áður en þeir mæta svo auðveldara sé að áætla fjölda gesta. Hægt er að skrá sig á www.markadsstofur.is",
  "innerBlocks": []
}
Mannamót Markaðsstofa landshlutanna verður á fimmtudaginn - Skessuhorn