Hafnarfjarðarbær er fyrstur sveitarfélaga til að innleiða nýtt tímasparandi kerfi við umsóknir um fjárhagsaðstoð.

Fjárhagsaðstoð sveitarfélaga fer í nýtt sjálfsafgreiðsluferli

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Umsókn um fjárhagsaðstoð er fyrsta samvinnuverkefni sveitarfélaga í stafrænni þróun inn á Ísland.is, þar sem tæknilegir innviðir Ísland.is eru nýttir. Fjárhagsaðstoð sveitarfélaga er lögbundið verkefni og tóku sveitarfélögin ákvörðun um að vinna sameiginlega að þróun sjálfsafgreiðlulausnarinnar. Hafnarfjarðarbær tók þátt í þróunarfasa og er því fyrst til að taka lausnina í notkun. Nú er unnið eftir innleiðingaráætlun til að tengja fleiri sveitarfélög við lausnina. Lausnin felur í sér mikinn verksparnað fyrir umsækjanda og starfsfólk sveitarfélaganna. Hún byggir í grunninn á hliðstæðri lausn Reykjavíkurborgar sem tekin var í notkun árið 2019 og hefur hlotið lof og viðurkenningu.\r\n\r\n„Ávinningur af þessu verkefni er mikill fyrir umsækjendur og starfsfólk. Ferlið verður styttra, minni pappírsvinnsla, kolefnissporið minnkar með minni keyrslu milli staða, fyrirspurnum mun fækka, lítil bið verður eftir gögnum og almennt hraðari afgreiðsla. Umsækjandinn sér strax hvar í ferlinu umsóknin er og ferlið verður allt aðgengilegra, skilvirkar og hagkvæmara,“ segir Rannveig Einarsdóttir, sviðsstjóri fjölskyldu- og barnamálasviðs Hafnarfjarðarbæjar.",
  "innerBlocks": []
}
Fjárhagsaðstoð sveitarfélaga fer í nýtt sjálfsafgreiðsluferli - Skessuhorn