
Súgandisey við Stykkishólm.
Deiliskipulag samþykkt fyrir Súgandisey
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Á bæjarstjórnarfundi Stykkishólmsbæjar 24. febrúar var lögð fram tillaga að deiliskipulagi fyrir Súgandisey um heildarskipulag og útsýnissvæði á eyjunni. Tillagan byggir m.a. á niðurstöðum úr hugmyndasamkeppni um skipulag og hönnun á útsýnissvæði á Súgandisey og skipulagið á að móta ramma fyrir útivistarsvæði á eyjunni og tryggja einnig öryggi sjófarenda með þar til gerðum mannvirkjum.\r\n\r\nBæjarstjórn hefur falið skipulagsfulltrúa að senda svör við þeim athugasemdum sem bárust á þeim tíma sem skipulagið hefur verið unnið, frá því það var fyrst auglýst í maí á síðasta ári. Þá var skipulagsfulltrúa einnig falið að senda tillöguna til yfirferðar Skipulagsstofnunar og birta auglýsingu um samþykki deiliskipulagsins í B-deild Stjórnartíðinda.",
"innerBlocks": []
}